Arna í Brussel
29.03.2006 17:56:25 / arna

Á leiðinni heim.....

Jæja þá er ég bara að koma heim......

Vá hvað það er eitthvað skrítið. Ég er nebblega búin að vera á ferðinni svo lengi, finnst mér allavega8)

Ég verð nú að viðurkenna að það verður fínt að koma heim. Hitta alla krakkana og familiuna:D Fara að vinna og eignast kannski smá pening, hver veit. Frekar leiðinlegt að eiga engan pening alltaf!!!!!

En ég á eftir að sakna þess mjög mikið að vera bara að tjilla í Brussel og London. Og ég tala nú ekki um Örnu Lind nýju frænku mína, ég á ekki eftir að sjá hana fyrr en í sumar:cry: Ömurlegt.......

En hver veit nema maður skellir sér bara í eina helgarferð hingað áður;) Hihi

 En ég sé sko allavega ekki eftir því að hafa skellt mér svona út ein. Maður hefur svo gott að þessu og ég er ekki frá því að ég hafi bara þroskast alveg helling á þessum 7 mánuðum;) Og þetta er búið að vera svoooo gaman allt:haha:

 

Við sjáumst bara á klakanum elskurar.....:lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 13:09:49 / arna

Litla sæta nafna mín;);)

Arna Lind Kristinssdóttir:D:D


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 13:19:57 / arna

Lítil prinsessa kominn í heiminn;);)

Já loksnins kom að því... Erla og Kristinn eignuðust litla stelpu klukkan 08:03 í morgun..... 16 merkur og 53 cm

Hún er svoooo falleg :haha:

Innilega til hamingju elskurnar mínar:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 15:45:43 / arna

Halló halló

Jæja jæja þá er ég búin að vera hér í rúmar tvær vikur. Og ég verð nú að segja að ég hata það ekkert að vera svona að slappa af8) Hihi. En ekkert bólar á litla krílinu. Ég fór með Erlu til ljósmóðirinnar í morgun og hún skoðaði hana og allt var í besta standi, hjá bæði henni og krílinu;) Siðan tjekkaði hún á hjartsláttinum og það var ekkert smá magnað að heyra hann, ég hef aldrei heyrt það áður:lol: Síðan kíkti ég aðeins í bæinn í gær og keypti mér stigvél, skó og tvo kjóla. Ekkert smá sátt:haha: Rosa gott veður til mikillar undrunar, ekki kalt!! Það er nebblega búið að vera mjög kalt undafarna daga Ég læt ykkur svo bara vita þegar barnið lætur sjá sig;) Love u dúllur

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 17:19:38 / arna

Allt að gerast!!!!

Hellú hellú héðan er allt gott að frétta bara mikið tjill og slappað af. Litla krílið lætur ekkert sjá sig, greinilega líður því bara svona vel hjá mömmu sinni... hehe

 

Ég vil óska Ernu Ósk innilega til hamingju með litla prinsinn og gangi ykkur sem allra best:D

 

 Róbert er hérna í London hjá Helga og Elfu þar til á þriðjudaginn næsta. Þeir ætla nebblega að fara á Liverpool – Benfika ( kann ekki að skrifa það). Og ætla  ég að skella mér í bæinn á morgun og hitta Róbert og krakkana, það verður stemming.

 

Síðan er pabbi að koma á föstudaginn og verður fram á sunnudaginn.  Hann er að fara á Arsenal – Liverpool leikinn á sunnudaginn, það verður sko ótrúlega gaman að fá gamla kallin hingað og ætlum við örugglega út að borða á föstud. eða laugard.;)

 

Síðan er setti dagurinn hjá Erlu á sunnudaginn:D og er búið að láta mig fá það verkefni að láta alla vita, þannig það kemur færsla alveg um leið;) Alveg nóg að gerast á næstu dögum;)

Bless á meðan elskurnar mínar

P.S Ég er ekki nógu ánægð með kommintin á þessari síðu!!!!  Það er möst að kvitta fyrir sig8|

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 12:55:30 / arna

Kominn til London;)

Jæja þá er ég kominn til London. Reyndar kom ég á sunnudaginn en þar sem  ég er svona svakalegur bloggari þá kemur smá færsla núna;)

Héðan er allt gott að frétta, Erla stækkar bara og stækkar og vonda fer litla krílið að koma í heimin. Ég get ekki beðið:D

Síðustu dagar eru búnir að vera mjög næs, í gær fórum ég og Erla aðeins í Ware sem er bær hérna við hliðiná og kíktu aðeins í búðir og versluðum inn, síðan um kvöldið fór Kristinn  að keppa og við skelltum okkur með að horfa á kappan. Það var alveg skítkallt þannig við klæddum okkur ekkert smá vel. Það var algjör snilld að horfa á hann og var Kristinn klárlega bestur í liðinu sínu;) leikurinn endaði svo 2-2, sem var ágætt8) En vá hvað mig langaði í fótbolta þegar ég var að horfa á, pirrandi :lol:

Í dag ætlum við Erla svo bara að vera í tjillinu, lita hárið á  Erlu og hver veit nema ég baki kannski eitt stykki súkkulaðiköki. Og í kvöld ætlum við svo að fara að spila manna og hafa kósýkvöld:)

Þannig að næstu dagar verða bara í tjillinu og að bíða eftir litla erfingjanum8)

Kossar og Knús

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 12:08:06 / arna

Ekki á morgun, heldur hinn.......................

Jæja þá fer bara að styttast í það að ég fari að koma til Íslands…… Bara ekki á morgun heldur hinn;) Tíminn er nú búin að vera mjög fljótur að líða svona í heildina, og er frekar skrítið að hugsa sér að ég sé búin að vera hér í  hálft ár!! Oh hvað það verður gaman að koma til Íslands gamla, ég sakna bara alls þar svooo mikið:lol:

 

En það eru nú samt hálf blendnar tilfinningar hjá mér núna, þar sem ég á aldrei eftir að koma hérna aftur til þeirra. Þó svo að maður sé nú búinn að vera með smá heimþrá og tilhlökkun í heimkomu, þá á ég sko eftir að sakna þeirra hérna og nokkra hluta soldið mikið, En hver veit  nema maður kíki kannski í heimsókn, þau verða nú hér í allavega 3 ár:)  en það verður samt aldrei eins…..

 

Ég ætla að telja hérna upp 10 hluti sem ég á eftir að sakna mest héðan frá Brussel :

 

1. Hagendags ís( veit ekki alveg hvernig það er stafað) Tvær kúlur, ein með ekta belgísku súkkulaði bragði og hin jarðaberja ostakköku bragði. Það er best í heimi, en auðvita er allur ís þarna góður, ég er soddan ískona hihi;)

 

2. Góða veðursins, allavega í haust þegar ég kom

 

3. H&M!!!

 

4. H&M!!!

 

5. Kokknum henni Bryndísi. Hún býr til endalaust góðan og hollan mat:D

 

6. Vöfflunum, Bjórnum og súkkulaðinu

 

7. Tjillinu, það er alveg nauðsynlegt að fá að slappa svona af og kynnast sjálfri sér aðeins og dekra almennilega við sig8)

 

8. Að tala við Steina á skype:!:  Algjörlega ómissandi8|

 

9. H&M!!!

 

10. Og síðast  ekki síst mest af öllu litlu dúllunum mínum. Það verður ekkert smá erfitt að fara frá þeim, og kveðja þær:S  Það er alveg fáránlegt hvað ég er búinn að tengist þeim. Mér finnst ég bara eiga smá í þeim Hihi;)

 

Jæja þá er ég farinn að taka úr vélinni, og klára að pakka, þetta er bara að fara að gerast :haha:

 

Bless á meðan dúllur;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 20:45:09 / arna

Myndir Myndir..........

Ég setti inn nokkrar myndir frá síðustu dögunum hérna í Brussel:S

Endilega tjekkið á því;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 12:32:25 / arna

Smá skemmtun hihi............

Rændi þessu hjá feimunum, þetta er bara svo gríðalega sniðugt hehe;)

 Og lesiði nú:

x) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

( ) stolið bíl

(x) verið ástfangin/n

(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu

( ) verið rekin/n

( ) lent í slagsmálum

(x ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.

(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n

( ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu

(x) skrópað í skólanum

(x) horft á einhvern deyja( Bröndu litlu sætu mína):cry:

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi

( ) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)

( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna( Ó JÁ ALLRA:s )

(x) legið á bakinu úti og horft á skýin

(x) búið til snjóengil

( x) haldið kaffiboð

(X ) flogið flugdreka

(x) byggt sandkastala

(x) hoppað í pollum

(x) farið í \"tískuleik\" (dress up)

( ) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik

(x) verið einmana

( ) sofnað í vinnunni/skólanum

(x) notað falsað skilríki

(X ) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta

( ) sofið undir berum himni

(x) verið kitluð/kitlaður

( ) verið rænd/rændur

(x) verið misskilin/n

( ) klappað hreindýri/geit/kengúru

(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

 ( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla

(x) lent í bílslysi

(x) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

(x) borðað líter af ís á einu kvöldi (Örugglega,Hann er svo góður, Hihi ;))

( ) dansað í tunglskininu

 (x) fundist þú líta vel út

( ) verið vitni að glæp

(x) efast um að hjartað segði þér rétt til

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum

( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni

( ) verið týnd/ur

( x) synt í sjónum

(x) fundist þú vera að deyja( Bara tilfinningalega)

(x) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik( Ójá í götunni minni í den, snilld)

(x) litað nýlega með vaxlitum

(x) sungið í karaókí

( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna) (

x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(x) hringt símahrekk

(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér

(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni

( ) dansað í rigningunni

(x) skrifað bréf til jólasveinsins

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

(x) kveikt bál á ströndinni

(x) komið óboðin/n í partý

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig ( Svona semí…Takk krakkar þið eruð best;))


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 21:00:42 / arna

Styttist í stuðboltan;)

Halló hallo jæja þá er bara farið að styttist í kellu…..

Ég ákvað að skella mér aðeins í bæinn í gær og gera svona lokakaupin, þið skiljið;) Og vitiði hvað það var endalaust mikið af íslendingum. Sko allan tíma sem ég hef verið hér og er það  núna  komið 5 og hálfur mánuður, hef ég séð sovona 10 íslendinga í bænum. En í gær voru örugglega um 30 stk. Það var samt frekar fyndið að heyra í þeim spjalla. Ég var bara ein í búðunum og lít kannski ekki alveg út fyrir að vera þessi týpíski íslendingur. En ég heyrði mikið vera að kommenta á fólk og föt í búðum og svolleiðis. Ég var nú reyndar alltaf að bíða eftir einhverju kommenti á mig eða einhverju svona sem ég gæti sagt eitthvað á móti og gert einhvern svona vandræðalegan. það hefði sko verið fyndið…:lol: En allt kom fyrir ekki…

En annars er bara gott að frétta, ég byrja að pakka í dag, frekar snemma en kemur kannski ekki þeim á óvart sem þekkja mig vel;). Ég ætlaði semsagt að tjekka kvort að  allt mundi ekki örugglega passa í töskurnar… En dótið var semsagt ekki alveg að fitta í töskurnar mínar. Þannig mín skellti sér bara í bæinn og keypti þennan þvílíka serk:lol: Soldið stóra tösku hehe… Því ég ætla nebblega að skilja eftir dót og föt í London þar til næst:)

En jæja ég er að hugsa um að fara að laga almennilega til í herberginu og skipta á rúminu mínu8)  Heyrumst elskurnar mínar og Kommentiði núna :!: Ég vil fá að vita hverjir séu að skoða síðuna mina:haha:

Kossar og knús   


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 22:09:39 / arna

Enn á lífi...

Hæhæ öllsömul ég er enn á lífi;) Það er frekar mikið búið að vera að gera hjá mér núna þannig að þið verðið að afsaka bloggleysi mitt að undaförnu.. Ég er búinn að vera að vesenast í að senda kassa heim, það er alveg magnað hvað það er búið að bætast mikið við af fötum síðan ég kom, en það er bara gaman af því, maður á aldrei nóg af fötum8) Kassarnir eru semsagt á leiðinni núna til Íslands...Jibbí

En af mér er annars bara gott að frétta ég er bara að klára að kíkja í búðirnar og sona áður en ég fer heim og kaupa allskonar dót handi liðinu mínu.. Mér finnst það sko ekki leiðinlegt, það er svo gaman að gleðja aðra og kaupa fyrir, þetta er líka svo ódýrt:lol:... En ég passa mig Steini að eyða ekki öllum peningunum mínum ég lofa;)  hehe

En ég bið bara að heilsa og sé alla á Íslandi eftir 11 daga:haha: Og eru ekki örugglega allir að fara útá lífið 18. feb?????????? það er skilda....  Annars verð ég að hitta alla saman, ohh hvað ég hlakka til að fara í heimsókn til Gunnhildar og kíkja á litlu snúlluna. Og að sjá hvað Natalía Rán og Birkir Már séu orðin stór vúff, tíminn líður svooo hratt:)

Bæjó kossar og stórt knús:D

P.S Signý ég vil núna heimta mynd af henni Natalíu Rán þú sendir mér aldrei kona góð!!!!;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 14:40:38 / arna

Innilegar hamingjuóskir........

Gunnhildur og Kiddi eignuðust litla prinsessu í nótt:haha::haha:   13 merkur og 51cm :D  Loksins kom hún í heiminn, hún kom nebblega 2 vikum og 2 dögum eftir áætlun, sem er slatti:!:                                                                                                                                En vil ég óska þeim alls hins besta og get ég ekki beðið að koma til Íslands og knúsa nýju prinsessuna mína;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 16:28:44 / arna

Allt að gerast

Jæja þá er það staðfest, ég kem heim 17.febrúar sem er föstudagskvöld.

Ég var að kaupa miðana í lestina og flugið…. Gleði Gleði:D Síðan voru Erla og Kristinn svo mikil rassgöt að kaupa handa mér miða aftur út til London 26. febrúar. Þannig ég verð á Íslandinu fagra í 8 daga og ætlast ég bara til að þið öll séu að fara að dansa af sér rassgatið á laugardeginum 18.  Annars verð ég mjög reið:whut:

En annars er bara allt gott að frétta af mér héðan, nema hvað að það er ógeðslega kalt hérna núna:| Það sem var orðið svo gott veður og núna er eitthvað farið að kólna aftur. Ekki sniðugt

Síðan verð ég að segja ykkur frá gröðu kanínunum sem eru útí garði hjá okkur. Hehe….Það er nebblega þannig að garðurinn okkar er sameiginlegur með fólkinu við hliðiná okkur og eiga þau tvær algjörar monsí kanínur. Sem litlu dúllurnar á heimilinu eru alveg sjúkar í. Þær vilja alltaf vera að horfa á þær í gegnum glugganum. Nema hvað að í 90% tilfella þegar þær kíkja eru þær að ríða, sem er frekar fyndið, en greyið Theodóra skilur ekkert í því afhverju hún sé alltaf ofaná henni….?? Og ég er ekki alveg á því að ég eigi að fara að útskýra fyrir henni hvað þær séu að gera…. En þetta er frekar fyndið hehe:lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 12:17:47 / arna

Smá pæling.....

Góðan og blessaðan daginn allir saman:)

Ég er búinn að vera að lesa nokkur blogg og fjalla þau mikið um það hvert menn séu að stefna núna í lífinu og ætla ég að herma smá eftir :lol:

Ég er einmitt mikið búin að vera að pæla í þessu öllu.Ætti ég að fara að vinna? Hvar á maður að vinna? Hvað ætlar maður að verða þegar maður er orðinn stór? Á maður að fara að læra eitthvað núna eða bíða með það aðeins? Hvað ætti ég að læra? Hvar ætti ég að læra? Á ég að prófa að búa í öðru landi?  Það er alveg magnað hvað maður er mikið að pæla í þessu öllu. Við höfum það líka flestöll mjög gott  á Íslandi að við höfum tækifæri á að gera eiginlega allt sem okkur dettur í hug, sem er auðvitað æðislegt .

Ég ákvað að skella mér hingað til Brussel síðasta sumar eftir mjög litlar pælingar. Mér hafði bara alltaf langað til að prófa að fara eithvað út  og fannst það bara vera rétti tíminn. Og ég hata nú ekki að vera með börnum!! Eins og þið vitið öll ;) hehe

Þessi reynsla hefur kennt mér svo óendanlega mikið um allt saman og ekki síst mig. Ég er nebblega búinn að þrengja allar þessar erfiðu ákvarðanir, núna er ég allaveg ákveðin í því að ég ætla alltaf að búa á Íslandi, allavega ætla ég aldrei að fara aftur ein í burtu frá fjölskylduni minni,vinum og Steina mínum.

 Ég ætla að stefna á það að vinna núna eins og vittleysingur og safna fyrir íbúð. Fara svo í skóla haustið 2007. Og þá vil ég vera kominn með íbúð. Ég nenni nebblega ekki að búa í foreldrahúsi alla mina háskólagöngu, sem verður örugglega í lengri kanntinum ef ég þekki mig rétt8| hehe  Þó það sé auðvitað æðisleg að búa hjá mömmu, þá þarf hún bara líka smá breik. Þó maður verði nú alltaf í heimsókn hjá kellu:D Ég er líka búinn að ákveða hvar ég ætla að vinna núna á næstunni og veit ég líka það að ég ætla ekki að vinna þar allt mitt líf, þó ég fíli vinnuna mjög vel.

Síðan síðast en ekki síst er maður búinn að átta sig á því hérna úti hversu ótrúlega gott maður hefur það á Íslandi og hvað maður á marga að, vini og fjölskyldu sem ég sakna allra svo ótrúlega mikið:cry:  Það eru nebblega svo mikið af litlum smáhlutum sem ég sakna, og að geta ekki hitt vini sína þegar maður vill er stór partur. Maður tekur  bara  alltof mikið sem sjálfsögðum hlut heima.

Ég persónulega mæli algjörlega með því að allir prófi að standa á eigin fótum og skelli sér út eða gera það sem þeim hefur alltaf langað til að gera, það er allt hægt;) Maður verður tvímannalaust reynslunni ríkari.

 Mottóið mitt er bara algjörlega að lifa í núinu!!!Ef manni langar virkilega til að gera eitthvað þá á maður bara að láta verða af því. Og ef manni líður illa einhversstaðar þá á maður bara að þora að redda því  og láta sér líða vel :haha:

Við lifum jú bara einu sinni:!::!:

Ég er búin að vera að hlusta mikið á nýja diskinn hennar Ragnheiðar Gröndal og er hann algjör snilld. Hún samdi öll lögin sjálf á honum og eru textarnir rugl flottir. Eitt lag á disknum hennar lýsir því algjörlega hvernig ég hugsaði áður en ég fór hingað út og er að enn að hugsa akkúrat núna:

 

                 You might never live again

 

It´s supposed to make you think,

think of what you have- all you´ve got.

What do you take for granted?

Have all your seeds grown just the way you thougt they would

and as you wanted them to grow?

 

This might be your only chance

to live like you do- so do it now!

There is no time to worry.

Have you ever wasted all your thoughts on things

considered a trouble, but were not?

 

You might never live again

so please just try to live.

You might never live again

so please just try to give

 

That´s all you can do

 

All your life is full of joy,

new things to see and learn.

Everything has been  taken care of.

Some may have more things than you

while others suffer more than you

                      wake up and move around!

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 10:36:33 / arna

Smá breyting!!!

Ég kem 18. feb;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4